Innlendir fjárfestar kaupa helmingshlut í Algalíf

Helmings hlutur í líftæknifyrirtækinu Algalíf hefur verið seldur hópi innlendra fjárfesta undir forystu framtakssjóðsins ALDIR I slhf. Norðmennirnir Kenneth G. Bern og Andres K. Flaaten munu áfram eiga hinn helming hlutafjárins. Stjórnendateymi félagsins verður óbreytt undir forystu forstjórans Orra Björnssonar.

Algalíf er íslenskt líftæknifyrirtæki sem framleiðir sjálfbært, náttúrulegt astaxanthín úr örþörungum. Það er öflugt andoxunarefni sem einkum er notað í fæðubóta- og heilsuvörur. Fyrirtækið er leiðandi á alþjóðavísu þegar kemur að sjálfbærni, framleiðslutækni, vísindum og vörugæðum.

Eingöngu er notuð endurnýjanleg jarðvarmaorka við framleiðsluna. Félagið var stofnað árið 2012 og starfa þar nú um 80 manns. Yfirstandandi stækkun á verksmiðju Algalífs á Ásbrú er nánast lokið og framleiðslan mun þrefaldast frá því sem verið hefur.

Nýir hluthafar hafa lýst því yfir að þeir hyggist halda áfram uppbyggingu félagsins með áherslu á aukna framleiðslugetu, frekari vöruþróun og aukna sókn á erlenda markaði.

„Þetta eru tímamót fyrir Algalíf. Með öfluga nýja hluthafa með okkur í liði erum við í sterkri stöðu til áframhaldandi vaxtar, nýsköpunar og aukinnar markaðssóknar á heimsvísu. Við erum sannfærð um að enn stærri sigrar séu fram undan,“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Facebook
LinkedIn